Arion banki einn af aðalbakhjörlum alþjóðlegrar ráðstefnu um vísitölu félagslegra framfara

Arion banki einn af aðalbakhjörlum alþjóðlegrar ráðstefnu um vísitölu félagslegra framfara

Arion banki einn af aðalbakhjörlum alþjóðlegrar ráðstefnu um vísitölu félagslegra framfara - mynd

Nýlega undirrituðu Arion banki og ráðgjafafyrirtækið Cognitio samstarfssamning í tengslum við alþjóðlegu ráðstefnuna ,,What Works“ sem haldin verður í Hörpu í annað sinn dagana 24.-26.apríl. Efni ráðstefnunnar er vísitala félagslegra framfara (Social Progress Index) en það er vísitala sem mælir samfélagslega innviði þjóða.

Þriðjudaginn 17. janúar var haldinn áhugaverður morgunverðarfundur í höfuðstöðvum Arion banka þar sem vísitalan um félagslegar framfarir var kynnt. VFF vísitalan er reiknuð út árlega fyrir 133 lönd í hinum ýmsu heimsálfum og 272 svæði innan Evrópusambandsins og mælir hversu vel tekist hefur til við að tryggja íbúum aðgengi að grunnþörfum, almenna velferð og tækifæri til betra lífs. Meðal þátta sem teknir eru inn í vísitöluna eru aðgengi að heilsugæslu, menntun og hagkvæmu húsnæði sem og staða jafnréttismála og trúfrelsis. Því er um að ræða nýja nálgun til að mæla árangur samfélaga en hingað til hefur fyrst og fremst verið horft til hagrænna þátta.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Cognitio, Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins og Sigurður Páll Hauksson, forstjóri Deloitte, voru með erindi á fundinum.

Meðfylgjandi eru myndir frá fundinum í höfuðstöðvum Arion banka.