Útibú Arion banka á Egilsstöðum í nýju húsnæði
Í dag opnaði útibúið á Egilsstöðum í nýju húsnæði að Miðvangi 6.
Útibúið hefur verið við Fagradalsbraut í næstum hálfa öld, eða frá árinu 1970, og þótti húsnæðið orðið frekar óhentugt fyrir nútíma bankastarfsemi. Nýja húsnæðið hentar hins vegar vel og er allt hið glæsilegasta.
Hafliði H. Hafliðason, útibússtjóri á Egilsstöðum:
,,Við erum að fara úr rými sem var á þremur hæðum yfir í rými sem er á einni hæð sem hentar virkilega vel fyrir okkar starfsemi í dag. Það var skemmtilegt að taka þátt í þessum breytingum og ég hef trú á því að starfsemin muni halda áfram að dafna vel í nýju húsnæði."