Ferðaþjónustuúttekt Arion greiningar: Höldum flughæð í gegnum ókyrrðina

Arion greining birti í morgun nýja ferðaþjónustuúttekt. Samkvæmt henni mun ferðamönnum fækka lítils háttar í ár en vöxturinn vera hógværðarlegur á næstu árum.
Eftir sterka viðspyrnu í kjölfar heimsfaraldursins stendur greinin nú á tímamótum. Hún hefur slitið barnskónum og tímabil ævintýralegs vaxtar virðist að baki, eins og ferðamannatölur síðustu mánaða bera með sér.
Flugframboð gegnir veigamiklu hlutverki í íslenskri ferðaþjónustu en breytingar á því geta bæði verið orsök og afleiðing af sveiflum í komu ferðamanna til landsins. Í október á síðasta ári boðaði PLAY miklar breytingar á viðskiptalíkani félagsins. Félagið leigði frá sér flugvél í vetur, sem fækkaði farþegum, og hefur fengið flugrekstrarleyfi á Möltu þar sem þrjár vélar verða starfræktar. Þá hafa erlend flugfélög dregið úr framboði sínu til landsins. Á móti kemur að Icelandair hyggst auka sætaframboð sitt í ár, sérstaklega utan háannatíma.
Ísland er á meðal dýrustu áfangastaða Evrópu vegna sterks gengis og hárra launa. Það er jákvætt upp á það að gera að ferðamenn skili þannig meiru í kassann, en getur sömuleiðis dregið úr samkeppnishæfni landsins. Það skýrir eflaust að einhverju leyti að hlutdeild íslenskrar ferðaþjónustu á meðal Norðurlandanna hefur verið að dragast saman.
Viðskiptahömlur á alþjóðavettvangi gætu dregið úr kaupmætti í Bandaríkjunum og víðar. Hversu mikið ræðst af umfangi tollanna, hvort þeir verða varanlegir og hvaða viðskiptalönd dragast inn í deilurnar. Við teljum að það muni hafa takmörkuð áhrif á komu ferðamanna hingað en gæti haft áhrif á tekjur greinarinnar í heild.
Ferðaþjónustan stendur frammi fyrir ýmsum öðrum áskorunum. Tekjur á hvert laust herbergi (RevPAR) hafa haldist nánast óbreyttar í krónum talið undanfarin tvö ár á sama tíma og ýmis kostnaður, þ.m.t. launakostnaður, hefur farið vaxandi. Þá hafa gjaldþrot og vanskil færst í aukana, starfsfólki fækkað og skemmtiferðaskip afbókað komur sínar vegna nýrra innviðagjalda.
Þessar áskoranir eru þó aðeins lítils háttar hindranir í samanburði við þau áföll sem ferðaþjónustan hefur þegar staðið af sér, og fullvíst er að hún verði áfram ein af meginstoðum íslensks efnahagslífs.
Ferðaþjónustuúttekt Arion greiningar: Höldum flughæð í gegnum ókyrrðina

