15. júní 2016
Arion banki og Kaupþing meta valkosti
Í ljósi áframhaldandi jákvæðrar þróunar íslensks efnahagslífs meta nú Arion banki og Kaupþing, sem er meirihlutaeigandi Arion banka, þá möguleika sem fyrir hendi eru varðandi eignarhlut Kaupþings í bankanum.
Almennt hlutafjárútboð er meðal þeirra kosta sem verið er að skoða, en rétt er að taka fram að engin ákvörðun hefur verið tekin varðandi framkvæmdina, tiltekin viðskipti eða tímasetningu.