09. febrúar 2016
Arion banki birtir ársuppgjör 2015 miðvikudaginn 24. febrúar
Arion banki birtir uppgjör ársins 2015 miðvikudaginn 24. febrúar næstkomandi.
Til að kynna ársuppgjörið verður haldinn símafundur á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 25. febrúar klukkan 13.00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði uppgjörsins.
Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar nánari upplýsingar varðandi þátttöku á símafundinum.