14. apríl 2023
Búið að leysa vandmálið sem kom upp í Danmörku

Vandamál sem komu upp í morgun í Danmörku hafa verið leyst og ættu kortafærslur frá Danmörku nú að vera réttar.
Vandamál komu upp vegna breytinga sem gerðar voru í morgun á kerfum alþjóðlega kortafyrirtækisins VISA og fólust í því að korthafar fengu ekki heimild á kortið þar sem færslur margfölduðust.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.
Ekki er hægt að útiloka frekari truflanir á greiðslumiðlun næstu daga, sérstaklega erlendis.