27. ágúst 2015
Arion banki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum
Arion banki hf. lauk í gær, miðvikudaginn 26. ágúst, útboði á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa sem eru óverðtryggð. Skuldabréfin eru til sjö ára og bera 6,50% fasta vexti.
Í heild bárust tilboð upp á 4.300 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir samtals 4.200 milljónir kr. á ávöxtunarkröfunni 7,0%.
Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi í byrjun september.