19. maí 2016
Svala Svavarsdóttir, þjónustustjóri Arion banka í Búðardal, í nýja húsnæðinu
Útibúið í Búðardal opnar í dag í nýju húsnæði
Í dag opnaði útibúið í Búðardal í nýju húsnæði að Miðbraut 13 og er aðstaðan öll hin glæsilegasta.
Framkvæmdir á nýja húsnæðinu hafa staðið yfir síðustu mánuði en fermetrunum fyrir starfsemina hefur verið fækkað úr 310 fermetrum áður í 70 fermetra nú og deilum við húsnæði með Póstinum.
Opnunartími útibúsins verður frá kl. 10.00-14.00 en búið er að setja upp alhliða hraðbanka sem verður opinn allan sólarhringinn.