Fjölskylduviðburður í Kringluútibúi laugardaginn 30. mars

Fjölskylduviðburður í Kringluútibúi laugardaginn 30. mars

Fjölskylduviðburður í Kringluútibúi laugardaginn 30. mars - mynd

Við hvetjum fólk til að kíkja við í útibúi bankans í Kringlunni laugardaginn 30. mars á milli klukkan 13 og 16. Þar verða Stjörnu-Sævar og Þórey Mjallhvít hreyfimyndagerðarmaður og teiknari með hönnunarsmiðju fyrir alla fjölskylduna.

Viðburðurinn er haldinn í tengslum við HönnunarMars, en Arion banki er aðalstyrktaraðili HönnunarMars.

FRAMTÍÐIN Á FRAMANDI PLÁNETU

Hönnunarsmiðja fyrir alla fjölskylduna í tilefni af HönnunarMars.

Mannkynið ætlar að búa til skýjaborg á plánetu í órafjarlægð, innan um furðuskepnur sem svífa yfir brenniheitu yfirborði. Hvernig förum við að því? Með hugmyndaflugi og ævintýraþrá!

Taktu þátt í að móta framtíðina á framandi plánetu í Arion banka í Kringlunni milli 13 og 16 laugardaginn 30. mars í skemmtilegri hönnunarsmiðju fyrir alla aldurshópa. Sævar Helgi Bragason eða Stjörnu-Sævar eins og hann er oftast kallaður og Þórey Mjallhvít Ómarsdóttir hreyfimyndagerðamaður og teiknari verða á staðnum og stýra fluginu af sinni alkunnu þekkingu og snilld. Öll gögn á staðnum.

Léttar veitingar í boði.