Vörður opnar nýtt útibú á Höfða

Vörður opnar nýtt útibú á Höfða

Vörður opnar nýtt útibú á Höfða - mynd
Vörður opnar nýtt útibú á Höfða - mynd
Jarþrúður Birgisdóttir - mynd
Jarþrúður Birgisdóttir

Samstarf Arion banka og Varðar blómstrar. Nýjasta merki þess er opnun nýs útibús Varðar við Bíldshöfða 20, þar sem Arion er fyrir með glæsilegt og vel sótt útibú.

„Þetta er ótrúlega skemmtilegt og jákvætt skref,“ segir Jarþrúður Birgisdóttir, þjónustustjóri Arion í Höfða. „Nú geta viðskiptavinir okkar komið og hitt bæði Vörð og Arion banka í öllum útibúum okkar á höfuðborgarsvæðinu. Það finnst mér frábært.“

Jarþrúður segir opnun nýja útibúsins vera enn einn liðinn í því að bæta þjónustu Arion við viðskiptavini sína. „Tryggingarnar eru stór partur af fjárhagslegu heilbrigði fólks. Hvert og eitt okkar þarf að vera rétt tryggt miðað við sína stöðu – ekki of tryggt – og sérfræðingarnir okkar geta einmitt aðstoðað við það. Ef eitthvað kemur upp á eru allar dyr opnar hjá okkur og aðgengi viðskiptavinarins að þjónusturáðgjöfum og öðrum sérfræðingum Varðar greitt og þægilegt.“

Jarþrúður kveður fjöldamarga viðskiptavini vilja geta gert sér ferð í bankann til að fara yfir sín mál augliti til auglitis við sérfræðing Arion. „Það hentar bara alls ekki öllum að fara rafrænt í gegnum þessi mál eða yfir símann,“ segir hún. „Við erum meðvituð um það og erum að bregðast við því kalli.“ Á Höfða starfi nú þjónusturáðgjafar Varðar sem hjálpi viðskiptavinum að öðlast yfirsýn og skilning á tryggingum sínum og aðstoði þá sömuleiðis með að tilkynna tjón, svo að fátt eitt sé nefnt.

Jarþrúður segir mikið hagræði felast í því að viðskiptavinir Arion geti nálgast alhliða bankaþjónustu og tryggingar á einum og sama stað til að spara sér sporin. Ráðgjafar Varðar aðstoða viðskiptavini við hvaðeina sem lýtur að tryggingum og tjónum og ráðgjafar Arion veita alla þjónustu er snýr að fjármálum og leiðbeina með notkun á stafrænum þjónustuleiðum. Alltaf sé tekið vel á móti fólki í kaffi og ráðgjöf.