Þægilegri bankaþjónusta í Kringlunni
Þessa dagana standa yfir breytingar í útibúi Arion banka í Kringlunni. Breytingarnar snúa bæði að húsnæðinu og þjónustunni sem þar er veitt. Þegar framkvæmdunum lýkur í september mun bankinn kynna til leiks aukið aðgengi að þægilegri bankaþjónustu.
Gjaldeyrishraðbankinn sem við opnuðum í útibúinu í vor var fyrsta skrefið í þessa átt. Hraðbankinn afgreiðir evrur, Bandaríkjadollara, danskar krónur og bresk pund á afgreiðslutíma útibúsins. Útibúið í Kringlunni er opið virka daga milli klukkan 10 og 17 og á laugardögum milli klukkan 11 og 15 en ekkert bankaútibú á landinu er með jafn rúman afgreiðslutíma. Í september mun afgreiðslutíminn rýmka enn frekar en við munum segja nánar frá því þegar nær dregur.
Við höfum tekið saman svör við ýmsum spurningum sem kunna að vakna vegna breytinganna á sérstakri síðu sem vísað er á hér fyrir neðan. Ef þú finnur ekki svarið við þínum spurningum eða hefur einhverjar spurningar eða ábendingar hvetjum við þig til að senda okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is.