Útskriftarnemar áhugasamir um sparnað og fjárfestingar

Útskriftarnemar áhugasamir um sparnað og fjárfestingar

Útskriftarnemar áhugasamir um sparnað og fjárfestingar - mynd

Nú er skemmtilegur tími fullur af veisluhöldum – prúðbúnir nemendur streyma út úr menntastofnunum landsins, henda húfum til himins og taka við blómum, bókum og öðrum gjöfum.

Brynjólfur Jón Brynjólfsson, sem starfar á Mörkuðum hjá Arion banka, segir ófáa útskriftarnema hafa leitað til sérfræðinga bankans á síðustu vikum, í því skyni að fá ráðleggingar um hvernig skynsamlegast sé að ávaxta útskriftargjafir í formi peninga. Einnig hafi viðskiptavinir óskað eftir ráðleggingum um hvernig gleðja megi útskriftarnemendur með peningagjöf í nafni viðtakandans sem fer inn á skynsamlega ávöxtunarleið.

„Við bendum fyrst á sparnaðarreikningana okkar,“ segir Brynjólfur Jón. Góð leið til að spara er einfaldlega að velja sparnaðarreikning með góðri vaxtaprósentu og leyfa svo tímanum að vinna sitt verk; þolinmæði sé gott sparnaðarráð. „Svo má einnig kynna sér sjóði Stefnis en þar eru margar góðar fjárfestingarleiðir í boði.“

„Það er sömuleiðis gleðiefni að ungar konur eru mikið að spá í þessi mál,“ bætir Brynjólfur Jón við. „Konur fjárfestum  -átaksverkefni Arion banka hefur vakið mikla athygli og við finnum fyrir sívaxandi áhuga meðal ungra kvenna á sparnaði og fjárfestingum.“ Enn sé þó misræmi í sparifjáreign ungra kvenna og karla hér á landi en það sé hægt og bítandi að breytast – fjöldi kvenna með verðbréfasafn hjá Arion hafi til dæmis aukist um 45% á þremur árum.

Við óskum útskriftarnemendum vítt og breitt um landið til hamingju með tímamótin og minnum á að við erum alltaf til staðar til að veita vandaða fjármálaráðgjöf. Netspjallið okkar er skjótasta leiðin til að hafa samband við okkur en eins má bóka fund með sérfræðingi, koma í útibú eða slá á þráðinn. Hér finnurðu allar frekari upplýsingar.

 

Fleiri greinar