Arion banki er aðili að Jafnvægisvog FKA

Benedikt Gíslason, bankastjóri, undirritaði nýlega viljayfirlýsingu um Jafnvægisvogina þar sem fram kemur að Arion banki ætli að vinna markvisst að því næstu árin að jafna hlut kynja í efsta lagi stjórnunar. Sjá yfirlýsinguna hér.
Jafnvægisvoginn er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA). Tilkynnt verður um nýja þátttakendur að viljayfirlýsingunni á ráðstefnu og viðurkenningarathöfn Jafnvægisvogarinnar og FKA sem haldin verður næstkomandi fimmtudag, 12. nóvember, kl. 14.00-16.00. Ráðstefnan verður að þessu sinni rafræn og fer skráning fram hér. Allir eru velkomnir.
Tilgangur Jafnvægisvogarinnar er:
- Að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi.
- Að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir.
- Að veita viðurkenningar og draga fram í sviðljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar.
- Að standa fyrir viðburðum og fræðslu og vekja samfélagið til hugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis.
- Að taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöður.
Dagskrá ráðstefnu
Opnunarávarp
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
Breytum heiminum – jöfnum stöðuna
Dr. Þóranna Jónsdóttir, stjórnendaráðgjafi, Háskólanum í Reykjavík
Jafnrétti skilar ávinningi
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá
Tilkynnt um nýja þátttakendur í Jafnvægisvoginni
Það dropar á glerþakið milli kvenna og peninga en fáar sprungur myndast
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans
Ákvörðun er ekkert...
Herdís Pála Pálsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, mannauðsstjóri Deloitte
Karlmennska í vegi fyrir kynjajafnrétti?
Þorsteinn V. Einarsson, verkefnastjóri verkefnisins Karlmennskan
Eliza Reid flytur ávarp og veitir viðurkenningar Jafnvægisvogarinnar árið 2020
Sækjum fram – jafnrétti er ákvörðun!
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, formaður FKA