Upplýsingar til þeirra sem keyptu flugmiða hjá Play og greiddu með greiðslukorti
Mynd: www.flyplay.comEndurgreiðslur vegna færslna frá Play
Viðskiptavinir sem sendu inn endurkröfu með réttum og fullnægjandi gögnum eru í flestum tilfellum búnir að fá endurgreitt inn á kortin sín. Endurgreiðslan er endurgreidd á sömu dagsetningu og kaupin voru gerð.
Endurkröfuréttur
Þar sem flugfélagið Play hefur hætt starfsemi vill Arion banki taka fram að meginreglan er sú að handhafar Visa greiðslukorta (bæði debet- og kreditkorta) eiga endurkröfurétt þegar fyrirframgreidd þjónusta sem greitt var fyrir með greiðslukorti hefur ekki verið eða verður ekki innt af hendi.
Þeir korthafar sem eiga bókað flug með flugfélaginu Play sem greitt var fyrir með greiðslukorti geta gert endurkröfu vegna flugferðar sem ekki verður farin.
Viðskiptavinum er bent á að gera endurkröfu rafrænt í gegnum vef Arion banka og velja þar tegund endurkröfu „Play endurkrafa – þjónusta ekki veitt.
Endurkröfubeiðninni þarf að fylgja afrit af bókun þar sem eftirfarandi upplýsingar koma fram: Bókunarnúmer, fjöldi farþega, dagsetning flugs ásamt brottfarar- og áfangastað.
Við bendum korthöfum á að senda inn endurkröfubeiðni sem fyrst þar sem afgreiðsla þessara mála getur dregist. Tímafrestur til að gera endurkröfu er 120 dagar frá því flug átti að eiga sér stað.
Hafi korthafar bókað ferð í gegnum ferðaskrifstofu bendum við á að hafa samband við ferðaskrifstofuna.
Nánari upplýsingar má finna á vef Samgöngustofu.
Endurkröfur á færslur vegna gjafabréfa
Ef viðskiptavinur er með ónotað gjafabréf frá Play eða ef flug sem keypt var með gjafabréfi féll niður þá á að senda endurkröfu vegna þess svo hægt sé að skoða hvort endurkröfuréttur sé til staðar.
Eftirfarandi skilyrði þarf að uppfylla áður en endurkröfubeiðni er send:
- Ef gjafabréfið er keypt af þriðja aðila (ekki Play) þá þarf korthafi að byrja á að hafa samband við þann sem seldi honum gjafabréfið og óska eftir endurgreiðslu. Upplýsingar um samskiptin og niðurstaða þeirra þarf að fylgja endurkröfunni.
- Hafi gjafabréfin verið notuð að hluta eða öllu leyti til kaupa á flugi sem féll niður þá þurfa gögn að fylgja með endurkröfunni varðandi kaupin/bókunina.
- Hafi gjafabréfið ekki verið notað þá þurfa að koma fram upplýsingar um það í endurkröfunni.
Fréttin var uppfærð 16. október 2025