Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki hf. lauk í gær útboði á víxlum til sex mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 2.280 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.320 milljónir kr. á 6,44% flötum vöxtum.

Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi í lok mánaðar.