Arion banki lækkar vexti vegna fyrirhugaðrar lækkunar á bankaskatti
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Áform stjórnvalda um að lækka bankaskatt skapa svigrúm til breytinga á vöxtum til hagsbóta fyrir viðskiptavini. Bankaskattur leggst með beinum hætti á fjármögnun banka og hefur því neikvæð áhrif á þau vaxtakjör sem bankar geta boðið sínum viðskiptavinum. Bankaskattur hér á landi er töluvert hærri en í nágrannalöndum okkar og verður það enn þrátt fyrir fyrirhugaða lækkun.
Lækkun bankaskattsins gerir okkur kleift að lækka vexti á verðtryggðum og óverðtryggðum íbúðalánum sem og kjörvexti bankans um 0,15% frá og með 1. apríl.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Verðtryggð íbúðalán
- Verðtryggðir fastir vextir til 5 ára eru 2,79% en verða 2,64%
- Verðtryggðir breytilegir vextir eru í dag 3,19% en verða 3,04%
Óverðtryggð íbúðalán
- Óverðtryggðir fastir vextir til 5 ára eru 5,24% en verða 5,09%
- Óverðtryggðir breytilegir vextir eru 4,19% en verða 4,04%
Bílalán
- Óverðtryggðir kjörvextir bílafjármögnunar eru 5,65% verða 5,50%
Kjörvextir
- Óverðtryggðir kjörvextir eru 5,25% en verða 5,10%
- Verðtryggðir kjörvextir eru 4,05% en verða 3,90%
Nánar má lesa um vexti Arion banka í vaxtatöflu bankans.