Arion banki stærstur á hlutabréfamarkaði Nasdaq Iceland áttunda árið í röð
.jpg)
Á árinu 2023 var Arion banki með mestu heildarveltu á hlutabréfamarkaði NASDAQ Iceland og er þetta áttunda árið í röð sem bankinn er með mestu hlutabréfaveltu allra markaðsaðila. Velta Arion banka var 303 milljarðar króna sem samsvarar 19,7% markaðshlutdeild. Var bankinn jafnframt með næstmestu veltu markaðsaðila á skuldabréfamarkaði Nasdaq Iceland á árinu. Velta Arion á skuldabréfamarkaði var 735 milljarðar króna og markaðshlutdeild 18,5%.
Arion banki var einnig með mestu hlutdeild markaðsaðila á First North markaðnum eða 24,9%.

