
Arion banki boðar, í samstarfi við Syndis, til morgunfundar um öryggismál mánudaginn 31. mars í Borgartúni 19. Reyndir sérfræðingar í netöryggi fyrirtækja deila reynslu sinni svo að við getum öll tekist betur á við og komið í veg fyrir mögulega netglæpi.
Hinn þekkti öryggissérfræðingur Troy Hunt, stofnandi og forstjóri Have I Been Pwnd, segir á lifandi og skemmtilegan hátt frá því hvað við getum lært af milljón gagnalekum og deilir víðtækri reynslu sinni af samstarfi við stjórnvöld, löggæslufólk og tæknigeirann.
Dagskrá fundar:
- Opnunarávarp - Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri
- „Það sem læra má af milljón gagnalekum“ - Troy Hunt, stofnandi og forstjóri Have I Been Pwnd
- „Áhrif gagnaleka á íslenskar netárásir“ - Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis
Húsið verður opnað kl. 08.30. Fundurinn hefst kl. 09.00 og stendur til 10.30.
Boðið verður upp á létta hressingu fyrir fundinn.