Netbanki
Velkomin í viðskipti
Lán
ÍbúðalánBílalánSkammtímalánEndurfjármögnunFasteignalífeyrislánGreiðslumat
Sparnaður
SparnaðarreikningarGjaldeyrisreikningarViðbótarlífeyrissparnaðurSkyldulífeyrissparnaðurEinkabankaþjónustaSjóðirVerðbréf
Kort og greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortErlendar greiðslurEndurkröfur
Fríðindi
Arion fríðindiArion framtíð FríðindareikningurArion PremíaEinkaklúbburinn
Tryggingar
Fjölskyldan og fasteigninLíf og heilsaFerðalög og áhugamálÖkutæki
Fjölskyldan
KrakkarnirUnglingarnirUnga fólkiðHeimilið50 ára og eldri
Einfaldaðu lífið
Endurfjármagnaðu láninRáð í greiðsluerfiðleikumFjármál og tryggingar á einum staðSettu sparnaðinn í áskriftLeiguskjól
Á tímamótum
Fyrsta starfiðAð eignast barnAð skipta um starfAð fara á eftirlaunUmsýsla dánarbúsFlytja til Íslands
Fræðsla og ráðgjöf
Konur fjárfestumNetsvikGreinarFjármálaráðgjöf
Velkomin í viðskipti
Fjármögnun
Bíla- og tækjalánBankaábyrgðir og innheimturSjálfbær lánFjárfestingalánRekstrarlán
Ávöxtun
Innlánsreikningar fyrirtækjaGjaldeyrisreikningarEignastýringSjóðirHlutabréf
Greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortLaunagreiðendurErlend viðskipti
Lausnir
Arion appiðNetbanki ArionInnheimtuþjónustaRegluleg innheimtaB2B
Tryggingar
Framleiðsla og iðnaðurSjávarútvegurLandbúnaðurVerslun og þjónustaFerðaþjónustaHeilbrigðis- og sérfræðiþjónusta
Rekstrarform
Lítil og meðalstór fyrirtækiStærri fyrirtækiEinyrkjarHúsfélög
Einfaldaðu reksturinn
Lykilaðgangur í netbankaRafræn skjöl og birtingarB2B
Ráðgjöf
FyrirtækjaráðgjöfFagfjárfestarEinkabankaþjónusta fyrirtækjaMarkaðsviðskiptiGjaldeyrismiðlunFjárfestingar á norðurslóðum
Þinn árangur
Allt fyrir fjármálastjórannÁrangur viðskiptavina
Stjórnskipulag
StjórnFramkvæmdastjórnStjórnarhættirStefnan okkarArion samstæðanSkipuritEignir til sölu
Mannauður
VinnustaðurinnÚtskriftarprógrammSækja um starfStarfsmannaleit
Sjálfbærni
Okkar sjálfbærniSjálfbær fjármál Árangurinn okkarSFDRStyrkir
Þjónusta
Útibú og hraðbankarHafðu sambandVelkomin í viðskiptiArion appiðNetbanki Arion
Regluverk
Áreiðanleikakönnun einstaklingaÁreiðanleikakönnun lögaðilaRéttarúrræði viðskiptavinaFjárfestaverndReglur og skilmálarPersónuverndFyrirvararVefkökur
Gögn
Vextir og verðskrárUmsóknir og eyðublöðGjaldmiðlar
Fjölmiðlar
Samskipti við fjölmiðlaMyndabankiFréttirGreinar
Afkomukynning 2F 2026Arctic InvestmentsMarkaðsdagur Arion 2024
Fjárhagsupplýsingar
LykiltölurUppgjör og kynningarFjárhagsdagatalÁhætta og eiginfjárhlutfallHluthafafundir og aðalfundirFjárhagsleg markmið og framtíðarsýn
Hlutabréf
Skráð hlutabréfHluthafalistiFlagganirGreinendur
Skuldabréf
Fjármögnun og útgáfulýsingEndanlegir skilmálarSértryggð skuldabréfSjálfbær fjármálaumgjörðLánshæfismatÚtgáfuáætlun
Miðlun
Tengiliðir fjárfestaKauphallartikynningarSkráning að kauphallartilkynningum

Við tökum vel á móti þér

Það er einfalt og þægilegt að stofna til viðskipta hjá okkur

Velkomin í viðskiptiHafa samband
Þjónustuver

Opið virka daga 9-16

+354 444 7000
arionbanki@arionbanki.is

Styttu þér leið
Útibú og hraðbankarVextir og verðskrárUmsóknir og eyðublöðReglur og skilmálarPersónuvernd
Áreiðanleikakönnun
EinstaklingarFyrirtækiSkráning skilríkja
Netsvik

netsvik@arionbanki.is

Netsvik
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedInTikTok

Arion banki

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 581008 - 0150

Swift: ESJAISRE

LEI: RIL4VBPDB0M7Z3KXSF19

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Einstaklingar
  2. ▸
  3. Lán
  4. ▸
  5. Íbúðalán

Við hjálp­um þér að eign­ast heimili

Við lánum allt að 80% af kaupverði íbúðar og allt að 85% ef um fyrstu kaup er að ræða.

Sækja um íbúðalánHefja greiðslumat
Fjölskylda við tölvu

Hvað hentar þér?

Óverðtryggð lán hafa hærri mánaðarlega greiðslubyrði og hraðari eignamyndun á meðan verðtryggð lán hafa lægri mánaðarlega greiðslubyrði en hægari eignamyndun.

Annar möguleiki er að taka blandað lán sem sameinar þá kosti beggja lánategunda.

Verðtryggð lán

Verðtryggð lán eru tengd vísitölu neysluverðs og breytast því þegar verðlag á landinu hækkar eða lækkar.

Verðtryggð lán eru með föstum vöxtum í 5 ár í senn. Að loknu hverju 5 ára tímabili hefur bankinn heimild til að endurskoða vextina og festa þá á ný fyrir næstu 5 ár. Síðustu 90 daga á hverju fastvaxtatímabili ber lánið ekki uppgreiðslugjald.

Óverðtryggð lán

Óverðtryggð lán eru ekki tengd vísitölu neysluverðs og hækka því ekki með verðbólgu.

Óverðtryggð íbúðalán eru á föstum vöxtum í 3 ár eða breytilegum vöxtum út lánstímann. Lánstími getur verið allt að 40 ár. Verði lánið ekki endurfjámagnað fyrir lok fastvaxtatímabilsins taka við þeir breytilegu vextir sem eru í boði á þeim tíma að viðbættu föstu vaxtaálagi sem tilgreint er í skilmálum lánsins.

Íbúða­lána­reiknivél

Ný kaup

Fasteignamat

kr.

Markaðsvirði

kr.

Upphæð láns

kr.

%

Verðtryggt

%

Óverðtryggt

Blandað lán

Upphæð láns

Lánstími

Grunnvextir

Vaxtaálag

Vextir

Tegund vaxta

Greiðslumáti

Áætluð verðbólga

Veðhlutfall

Sækja um íbúðalánNánar um greiðslumat

Viðbótar­íbúða­lán

Hentar þeim sem vilja nýta sér hagstæð lífeyrissjóðslán en þurfa viðbótarfjármagn til að kaupa nýtt eða endurfjármagna núverandi húsnæði.

Viðbótaríbúðalán

Greiðslu­mat

Við reiknum út greiðslugetu þína á örfáum mínútum. Fyrsta skrefið er að nota rafræn skilríki til að heimila okkur að sækja upplýsingar um launatekjur, eignir og skuldir.

Greiðslumat
Fjármál og tryggingar - maður

Endur­fjármögnun

Lánaumhverfið er kannski hagstæðara nú en þegar þú tókst lán, sem gæti skilað sér í lægri vöxtum og greiðslubyrði.

Endurfjármögnun

Lán vegna ný­bygginga

Við bjóðum þeim sem eru að byggja sér húsnæði heildstæða fjármögnun, allt frá lóðarkaupum og þar til eign er orðin fullbyggð.

Byggingalán

Ert þú með er­lendar tekj­ur?

Ert þú með tekjur í erlendum gjaldmiðli? Við bjóðum íbúðalán fyrir fólk sem er með lögheimili erlendis eða er með erlendar tekjur og þarf að standast greiðslumat á Íslandi.

Lán tengd erlendum gjaldmiðli
Fjármál og tryggingar - kona 3

Græn íbúða­lán

Þú færð 100% afslátt af lántökugjaldi á íbúðalánum ef þú kaupir umhverfisvottað íbúðarhúsnæði.

Staðfesting á því að eignin hafi verið vottuð af einum eftirtalinna aðila þarf að liggja fyrir:

  • Svansvottun

  • BREEAM – Very Good

  • LEED Gold

Fasteignalán

Fasteignalán henta þeim sem eru að kaupa ósamþykkt íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði eða sumarhús. Lánið kemur einnig til greina ef umsókn, eða veð, uppfyllir ekki kröfur um íbúðalán.

Fasteignalán

Við vilj­um koma til móts við þig

Þú getur sent íbúðalánið í leyfi

Við ákveðnar aðstæður getur komið sér vel að geta sótt um leyfi frá greiðslu á íbúðaláni.

Leyfi íbúðalána

Tímabundnir greiðsluerfiðleikar

Þegar greiðsluerfiðleikar koma upp er mikilvægt að bregðast hratt við og kanna hvaða úrræði eru í boði til að greiða úr málunum.

Ráð í greiðsluerfiðleikum

Betri kjör við fyrstu kaup

Til að auðvelda fyrstu kaup lánum við allt að 85% af markaðsvirði eignar og veitum jafnframt 100% afslátt af lántökugjaldi.

Lægri greiðslubyrði í fæðingarorlofi

Við bjóðum nýbökuðum foreldrum að lækka greiðslurnar sínar um allt að helming meðan á fæðingarorlofi stendur.

Lægri greiðslur í fæðingarorlofi

Greiðslufesta

Þegar þú setur greiðslufestu á lánið þitt greiðir þú fasta upphæð í tólf mánuði, sem er lægri en mánaðarleg greiðsla samkvæmt skilmálum lánsins.

Greiðslufesta
Fjármál og tryggingar - kona 2

Áttu eft­ir að tryggja heimilið?

Við viljum að þú njótir góðs af því að vera með fjármálin og tryggingarnar á sama stað. Það eina sem þú þarft að gera er að ná í Arion appið, smella á Meira og svo á Mínar tryggingar. Ef þér líst vel á tilboðið klárar þú kaupin með einum smelli. Þetta er svona einfalt.

Tryggingar fyrir heimilið

Íbúða­líf­trygging

Trygging sem veitir fjölskyldum hugarró með því að tryggja greiðslu á afborgunum og vöxtum lánsins í tiltekinn tíma.

Líftryggingin er í boði fyrir þá sem taka ný íbúðalán hjá Arion.

Nánar á vordur.is

Greinar

Íbúðalán

Að velja rétta íbúðalánið

Að velja rétta íbúðalánið er stór ákvörðun sem hefur áhrif á fjárhag heimilisins til margra ára. Því er mikilvægt að skilja hvernig val á lánstíma og tegund lána getur breytt bæði greiðslubyrði og heildarkostnaði. Hvort lánið er verðtryggð eða óverðtryggð, og hversu langur lánstíminn er, getur haft veruleg áhrif á greiðslubyrði og eignarmyndun.

Lesa meira
Það geta allir tekið Núlán í Arion appinu

Hvernig fara íbúðakaup fram?

Þegar greiðslugetan hefur verið könnuð og útborgun tryggð þá er komið að því að finna draumaeignina. Það ferli getur tekið mislangan tíma en mikilvægt er að vanda valið og finna þá eign sem er með flesta þá eiginleika sem leitað er að.

Flestir eru með mjög skýrar hugmyndir um hvernig íbúð er leitað að og hvaða skilyrði hún þarf að uppfylla en það er gott að hafa það í huga að það þarf ekki að vera að íbúð finnist sem uppfyllir allar óskir. Við kaup á fyrstu fasteign þarf oft að forgangsraða eiginleikum og velja þá eign sem tikkar í flest boxin ef ekki finnst eign á réttu verði sem uppfyllir allt saman.

Lesa meira
Hlutamyndir - tölva sími skrifblokk blýantur

Skiptir lánstími máli?

Þegar nýtt lán er tekið getur það skipt sköpum á hversu löngum tíma greiða skal lánið til baka. Það er misjafnt hver hámarkstími lána getur verið en lengst er lánað fyrir fasteignakaupum til 40 ára.

Lesa meira
Reykjavík - Esja

Val á húsnæði, leigja eða kaupa?

Það er erfitt að segja til um hvort það henti þér að leigja eða kaupa og þar ráða helst ferðinni þín fjárhagsstaða og þín fjárhagslegu markmið. Þú skalt reikna hvoru tveggja til enda áður en þú tekur ákvörðun. Ef stefnan er tekin á fasteignakaup eru nokkur mikilvæg atriði sem gott er að kynna sér og hafa á hreinu áður en af stað er farið.

Lesa meira
01 / 02

Nánari upplýsingar

Óverðtryggð lán bjóðast til allt að 40 ára. Verðtryggð lán bjóðast til allt að 30 ára.

Í boði eru óverðtryggðir breytilegir vextir út lánstímann eða óverðtryggðir fastir vextir í þrjú ár sem fara að fastvaxtatíma loknum yfir á óverðtryggða breytilega vexti.

Verðtryggð lán bjóðast á föstum vöxtum til þriggja ára og að þeim tíma liðnum fá lánin sömu vexti og sambærileg ný lán fá.

Veð er alltaf í íbúðarhúsnæði.

Íbúðalán eru alla jafna ýmist með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum.

Þú getur endurfjármagnað lán með jöfnum útborgunum og valið jafnar greiðslur. Þá er tekið tillit til greiðslumats eins og þegar hefðbundin endurfjármögnun íbúðalána á sér stað.

Hvað eru jafnar greiðslur?

Jafnar greiðslur virka þannig að þú greiðir u.þ.b. sömu heildarupphæð í hverjum mánuði út lánstímann.

Greiðslan samanstendur af:

  • Höfuðstólsgreiðslu

  • Vöxtum

  • Verðbótum (ef lánið er verðtryggt)

Til að byrja með er greiðslubyrði yfirleitt lægri heldur en af láni með jöfnum afborgunum, en höfuðstóllinn lækkar hægar.

Hvað eru jafnar afborganir?

Jafnar afborganir virka þannig að þú greiðir sömu upphæð af höfuðstólnum út lánstímann.

Greiðsla samanstendur af:

  • Höfuðstólsgreiðslu

  • Vöxtum

  • Verðbótum (ef lánið er verðtryggt)

Til að byrja með er greiðslubyrði yfirleitt hærri en af láni með jöfnum greiðslum. Höfuðstóllinn lækkar þó hraðar og greiðslubyrðin í takt við það.

Það er ekkert uppgreiðslugjald á lánum með breytilegum vöxtum.

Lán með fasta vexti geta verið með uppgreiðslugjald.

Ekki þarf að greiða uppgreiðslugjald þegar eftirfarandi á við:

  • Vextir á sambærilegum íbúðalánum með föstum vöxtum, sem bankinn býður á þeim tíma, eru jafnháir eða hærri en vextirnir á láninu sem greiða á upp.

  • Síðustu 90 daga á hverju fastvaxtatímabili verðtryggðra lána ber lánið ekki uppgreiðslugjald.

  • Greiðslur nema lægri fjárhæð en 1.000.000 kr. á hverju almanaksári.

Greiða þarf uppgreiðslugjald þegar eftirfarandi á við:

  • Lán er greitt upp á því tímabili sem lánið er á föstum vöxtum og vextir á sambærilegum lánum með föstum vöxtum, sem bankinn býður á þeim tíma, eru lægri en vextirnir á láninu sem greiða á upp.

Uppgreiðslugjald reiknast samkvæmt eftirfarandi forsendum:

  • Uppgreiðslugjald má ekki fara yfir 0,2% af fjárhæð endurgreiðslu fyrir hvert heilt ár sem eftir stendur af binditíma vaxta fasteignaláns, þó aldrei hærri fjárhæð en nemur kostnaði bankans af endurgreiðslunni eða 1% af endurgreiðslu.

  • Uppgreiðslugjaldið byggist á hlutlægum grunni vegna kostnaðar sem bankinn verður fyrir og tengist beint greiðslu af láninu sem gerð er fyrir umsaminn gjalddaga.

Nánari upplýsingar um uppgreiðslugjald á lánum sem þegar hafa verið veitt er að finna í verðskrá Arion banka, en mismunandi reglur gilda eftir því á hvaða tíma lán var gefið út.

Önnur gjöld eru samkvæmt verðskrá Arion banka á hverjum tíma.

Íbúðalánum getur verið skipt í tvö lán eftir veðsetningarhlutfalli eignar.

Á Grunnlán er gerð krafa um 1. veðrétt og hámarksveðhlutfall er 70% af fasteignamati eða markaðsverði eignar þ.e. því sem lægra reynist.

Viðbótaríbúðalán er lán veitt frá 70% veðsetningu. Það er eingöngu í boði sem óverðtryggt íbúðalán.

Kaupsamningur: Íbúðalán II fer á 2. veðrétt á eftir Íbúðaláni I og hámarksveðhlutfall er 80% m.v. kaupsamning (85% ef fyrstu kaup).

Endurfjármögnun: Íbúðalán II fer á 2. veðrétt á eftir Íbúðaláni I og hámarksveðhlutfall er 80% m.v. fasteignamat.

Ef lánsfjárhæð er hærri en 50 m.kr. áskilur bankinn sér rétt til að gera auknar kröfur vegna lánveitingar.

  • Lántökugjald er skv. verðskrá

  • Þinglýsingargjald er skv. verðskrá Sýslumannsembættis

  • Önnur gjöld vegna lántöku, t.d. greiðslumat og skjalagerð, eru skv. verðskrá hverju sinni

Spurt og svarað

Almennt (8)
​

Nei, en í sumum tilfellum eru veitt fasteignalán upp að ákveðnu veðhlutfalli. Hver lánsumsókn vegna ósamþykktra íbúða er metin sérstaklega.

Nei, lánað er út frá fasteignamati og fellur þar af leiðandi ekki til kostnaður vegna verðmats.

Ekki er hægt að segja fyrir um slíkt. Vaxtastig tekur breytingum og hafa fjölmargir þættir áhrif á það. Vextir lána með breytilega vexti geta því ýmist hækkað eða lækkað en fastir vextir haldast óbreyttir. Þegar vaxtastig hækkar, þá er hagkvæmara að vera með fasta vexti en þegar vaxtastig lækkar er hagkvæmara að vera með breytilega vexti.

Lánin eru einungis ætluð einstaklingum sem kaupa eða endurfjármagna húsnæði til eigin nota, en ekki til útleigu eða t.d. fyrir einkahlutafélög eða aðra rekstraraðila. Skilyrði er að hafa lögheimili í eigninni. Ekki er gerð krafa um að lántakendur séu í viðskiptum við bankann.

Íbúðalán er hægt að nota við kaup á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða til endurfjármögnunar á eldri lánum. Í raun má nota endurfjármögnunarlánið hvernig sem lántakanda hentar, til að fjármagna viðgerðir eða endurbætur, greiða upp eldri óhagstæðari lán, yfirdrátt eða aðrar skuldir.

Þegar einstaklingur og sjóður kaupa eign saman, sem einstaklingurinn ætlar að nýta til eigin nota, þá standa til boða verðtryggð íbúðalán til hámark 25 ára eða óverðtryggð íbúðalán til hámark 40 ára.

Við endurfjármögnun er greitt lántökugjald, greiðslumatsgjald, skjalagerðargjald og þinglýsingargjald. Það er misjafnt hvort lánastofnun krefst uppgreiðslugjalds.

Ef ekki er staðið við skuldbindingar samkvæmt samningi verður lántakandi krafinn um að greiða dráttarvexti vegna vangoldinna greiðslna. Einnig verður lántakandi krafinn um að greiða allan kostnað sem kann að koma til vegna vanskila, t.d. vegna innheimtubréfa, málsókna eða annarra réttargjalda, lögmannsþóknunar, svo og annan lögfræðilegan kostnað vegna innheimtu skuldarinnar. Þá geta vanskil orðið til þess að allt lánið verður gjaldfellt og sett í lögfræðilega innheimtu sem getur leitt til þess að veðtrygging verður seld á nauðungaruppboði.