Farðu þér hægt stærstu verslunardaga ársins

Stærstu verslunardagar ársins eru framundan og fá neytendur gjarnan frábær tilboð í verslunum og á netinu. En á sama tíma og fólk nýtur góðra kjara, nýta glæpamenn sér álagið til að svíkja og pretta. Hér eru því nokkur gagnleg ráð sem hjálpa þér að forðast kortasvik.
Settu upp gagnrýnisgleraugun
Á þessum tíma árs fær fólk ógrynni af tilboðum, bæði í tölvupósti og á samfélagsmiðlum. Áður en þú smellir á hlekki, eða opnar viðhengi, er því gott að taka sér tíma til að yfirfara textann. Svikapóstar líta gjarnan út fyrir að vera traustsins verðir, en geta engu að síður leitt þig á vefsíður þar sem upplýsingunum þínum gæti verið stolið.
Veistu við hvern þú ert að versla?
Það er mikilvægt að ganga úr skugga um að þú sért að eiga viðskipti við áreiðanlegar verslanir. Ef þú ert að versla á netinu skaltu leita að lásamerkinu við slóðina og athuga hvort vefslóðin byrji á „https.“ Þetta sýnir að síðunni sé stýrt á öruggan hátt og að greiðsluupplýsingar séu verndaðar.
Forðastu opið Wi-Fi
Opið Wi-Fi getur verið auðvelt skotmark fyrir svikara. Forðastu því að slá inn kortaupplýsingar og annað slíkt þegar þú notast við opið net á kaffihúsum, flugvöllum eða öðrum almenningsstöðum. Því þegar upp er staðið er líklega ódýrara að borga fyrir gagnamagn heldur en að lenda í klóm netþrjóta.
Nýttu þér Netkort
Netkort er plastlaust, fyrirframgreitt kreditkort sem þú getur notað til að versla á netinu – og því tilvalið á einum stærsta verslunardegi ársins. Athugaðu að ekki er hægt að greiða með Netkorti í hefðbundnum posum.
Hafðu augun opin
Það er oft mikill hasar þessa stærstu verslunardaga ársins. Þá er gott að geta með einföldum hætti fylgst með bankareikningnum sínum. Í Arion appinu er hægt að kveikja á tilkynningum, svo þú getir fylgst með færslum í rauntíma. Ef þú kemur auga á eitthvað óvanalegt er best að frysta kortið og hafa samband við bankann.
Við mælum með að þú hafir þessi ráð í huga því þannig má tryggja að dagurinn gangi snurðulaust fyrir sig og þú sitjir ekki eftir með sárt ennið.