Góð ráð til að verjast tilraunum til fjársvika í netbanka

Undanfarna viku höfum við orðið vör við aukinn fjölda tilrauna til fjársvika í gegnum netbanka. Á þetta jafnt við um netbanka einstaklinga og fyrirtækja. Við viljum því vekja athygli á eftirfarandi aðferðum sem svikarar hafa reynt að nýta sér og hvernig best er að verjast þeim.
Ísland.is – við notum aldrei island.is til innskráningar í app eða netbanka
Borið hefur á fölsuðum tölvupóstum frá Ísland.is þar sem viðskiptavinir eru beðnir um að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum, t.d. til að virkja þjónustur. Mikilvægt er að fara inn á heimasíður þeirra fyrirtækja eða stofnanna sem óska eftir innskráningu, en ekki smella á hlekk í tölvupósti. Við minnum á að bankar nota ekki island.is til innskráningar í netbanka eða app.


Rafræn skilríki – ekki samþykkja innskráningu nema með réttu staðfestingarnúmeri
Komið hafa upp tilfelli þar sem svikarar senda beiðnir handahófskennt í fjölda símanúmera, þar sem þeir biðja fólk að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Ef þú færð slík skilaboð er mikilvægt að bregðast ekki við með því að samþykkja innskráninguna. Mikilvægt er að samþykka aldrei innskráningu með rafrænum skilríkjum, nema þú hafir fengið sent rétt staðfestinganúmer og sért að skrá þig inn á viðkomandi síðu.
Tölvupóstur eða símtal – við biðjum aldrei um persónulegar upplýsingar í síma eða tölvupósti
Við biðjum viðskiptavini aldrei um að staðfesta persónulegar eða öryggistengdar upplýsingar í símtali eða tölvupósti. Þetta á m.a. við um vegabréfsnúmer, kreditkortanúmer, CVV/CVC kóða eða gildistíma korta.
Innskráning í netbanka eða app – aldrei gefa upp lykilorðið þitt
Aldrei gefa upp lykilorðið þitt í netbankann eða appið í gegnum síma eða tölvupóst. Hér má nálgast góðar upplýsingar um öryggismál sem við hvetjum þig til að skoða.