100% afsláttur í sjóði Stefnis til 5. febrúar fyrir viðskiptavini Arion banka

Veittur er 100% afsláttur af gengismun sjóða Stefnis fyrir viðskiptavini Arion banka þegar viðskipti eru framkvæmd í netbanka Arion banka. Afslátturinn gildir frá 4. janúar, til og með 5. febrúar 2021.
Með þessu eru viðskiptavinir hvattir til að afgreiða sig sjálfir með sjóði í netbanka Arion banka en það er í takt við stefnu bankans um að auðvelda viðskiptavinum að sinna fjármálum sínum hvar og hvenær sem er.
Stefnir hefur að bjóða eitt fjölbreyttasta sjóðaúrval hér á landi. Allir sem vilja ávaxta fé sitt ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru ríkisskuldabréfasjóðir, innlendir og erlendir hlutabréfasjóðir eða blandaðir sjóðir.
Við minnum að sjálfsögðu á að reglubundinn sparnaður í sjóðum er góð leið til kynnast sjóðum og spara fyrir framtíðina.
Skoðið sjóðaúrvalið hér.
Hvað þarf að gera til að eiga viðskipti með sjóði Stefnis?
- Stofna netbanka hjá Arion banka með nokkrum smellum
- Stofna vörslusafn rafrænt
- Skrá viðskipti í netbanka
Einfalt og öruggt.
Fyrirspurnir berist til Verðbréfaþjónustu bankans.