06. júlí 2018
Helmings afsláttur af lántökugjöldum við fjármögnun vistvænna bíla

Bílafjármögnun Arion banka býður nú 50% afslátt af lántökugjöldum við fjármögnun vistvænna bíla. Með því að bjóða betri kjör við kaup á vistvænum bílum styður Arion banki við viðskiptavini sína í þeirri vegferð að nota vistvænni orkugjafa og þar með menga minna.
Betri kjör fyrir viðskiptavini sem velja vistvænni kost rímar vel við áherslur bankans í umhverfismálum og skuldbindingar bankans í tengslum við loftslagsmarkmið Festu og Reykjavíkurborgar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.