Fasteignaráðstefnan í Hörpu
Síðastliðinn miðvikudag fór Fasteignaráðstefnan fram í Hörpu í annað sinn. Líkt og í fyrra var Arion banki aðalbakhjarl ráðstefnunnar sem um 200 manns sóttu. Á bási Arion banka voru stafrænar lausnir bankans á íbúðalánum kynntar og þar var hægt að virkja rafræn skilríki til að nýta lausnirnar til fulls.
Fundarstjórar voru Sveinn Gíslason, svæðisstjóri Arion banka í Reykjavík, og Hafdís Hansdóttir, svæðis- og útibússtjóri í Smáranum. Á ráðstefnunni var fjöldi erinda um þróun og horfur á húsnæðismarkaði og var umfjöllunarefnið allt frá byggingarreglugerðum yfir í fasteignabólur.
Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsinga- og tæknisviðs, var með erindi þar sem hún fjallaði um íbúðalán á netinu og stafræna framtíð. Svo fjallaði Konráð S. Guðjónsson úr greiningardeild um hvað lita muni eftirspurn á íbúðamarkaði til skemmri og lengri tíma. Glærur Konráðs má finna hér.