Arion appið best – áttunda árið í röð!

Arion appið best – áttunda árið í röð!

Arion appið best – áttunda árið í röð! - mynd

Samkvæmt könnun Maskínu telja viðskiptavinir bankanna Arion appið það besta sinnar tegundar – og það áttunda árið í röð. Við þökkum hjartanlega fyrir þessa jákvæðu endurgjöf og nýtum hana sem hvatningu til að gera enn betur. Síðustu árin hefur Arion banki lagt mikla áherslu á að vera leiðandi fjármálafyrirtæki í öllu því sem lýtur að stafrænni tækni, eins og endurspeglast í fjölbreyttu stafrænu vöruframboði og þeim stóra og framúrskarandi hópi sem starfar við vöruþróun og á upplýsingatæknisviði bankans.

„Það er virkilega gleðilegt að eiga besta bankaappið áttunda árið í röð,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs. „Helsti styrkleiki Arion appsins er hversu fjölbreytta möguleika það býður upp á, ásamt því að vera virkilega aðgengilegt og einfalt í notkun. Í appinu hefurðu yfirsýn yfir allt sem tengist fjármálum þínum: Þú sérð kortareikningana, sparnaðinn, tryggingarnar, lífeyrissparnaðinn og vörslusafnið – allt á einum stað. Þarna geturðu því sinnt öllum fjármálaþörfum þínum og þarft ekki að leita neitt annað. Ég er ótrúlega stolt af fólkinu okkar sem leggur líf og sál í að þróa og viðhalda þessari frábæru vöru.“

Arion appið er í stöðugri þróun enda leitum við sífellt leiða til að bæta enn þjónustu okkar við viðskiptavini. Þetta sést til dæmis á þeim nýjungum sem við kynnum reglulega í appinu og verða oft til vegna fyrirspurna eða endurgjafar frá viðskiptavinum. Nýjasta viðbótin er „Fjölskyldan“, en þar fá forráðamenn nú sjálfkrafa sýn á reikninga barna sinna og geta enn fremur deilt sýn á eigin fjármál með maka.

Við hlökkum til að halda áfram að þróa besta bankaappið. Hér má lesa sér betur til um Arion appið.


Fleiri greinar