Að byrja í fyrstu vinnunni – nokkur góð ráð

Varstu að byrja í fyrstu vinnunni? Til hamingju með það! Það er stórt skref að hefja störf á fyrsta vinnustaðnum og margt sem hafa þarf í huga. Við tókum saman nokkur hagnýt ráð sem gott er að hafa á bak við eyrað.
Byrjaðu strax að spara
Það er gott að huga strax að sparnaði og leggja mánaðarlega fyrir hluta af laununum. Margt smátt gerir eitt stórt og það munar um allt. Skoðaðu endilega viðbótarlífeyrissparnað og aðra sparnaðarreikninga sem skipt geta miklu, til dæmis við fyrstu bílakaup eða jafnvel íbúðarkaup.
Margir skipta laununum sínum í þrjá hluta: 1) peninga sem fara í daglegt líf (s.s. mat, samgöngur, föt, afþreyingu), 2) sparnað fyrir viðburðum (s.s. tónleikum, leikhúsi, utanlandsferðum), og 3) langtímasparnað (s.s. bíl eða íbúð).
Lærðu á launaseðilinn þinn
Á fyrsta launaseðlinum eru skráðir þeir tímar eða dagar sem þú vannst í mánuðinum og heildarlaunin reiknuð. Það sem kemur mörgum á óvart þegar þeir fá fyrsta launaseðilinn er sá frádráttur sem er gerður á laununum.
- Staðgreiðsla tekjuskatts
- Allir greiða skatt af tekjum sínum
- Lífeyrissjóður
- 4% skyldusparnaður er tekinn af launum og greiddur í lífeyrissjóð
- Þú getur greitt aukalega 4% í viðbótarlífeyrissparnað
- Orlof
- Orlof er stundum greitt sérstaklega inn á orlofsreikning
- Orlof er þá greitt út 11. maí á hverju ári
- Stéttarfélag
- Stéttarfélagið getur aðstoðað við að kanna og halda utan um réttindi þín
Þú ert fjárráða 18 ára – því fylgir mikil ábyrgð
Í fyrstu virðist það kannski ekki mikil breyting á lífinu að verða 18 ára. Það er eins að vakna 17 og 18 ára, en lagalega er þó mjög mikill munur á þessu tvennu.
Þegar þú verður 18 ára telstu nefnilega bæði fullorðinn og sjálfráða samkvæmt lögum. Þú hefur öðlast réttindi til að taka þátt í kosningum og enn fremur öll önnur réttindi sem fullorðnir einstaklingar hafa (nema að kaupa áfengi). Þú þarft til dæmis ekki lengur leyfi forráðamanna til þess að sækja um vegabréf, rafræn skilríki eða til þess að ferðast á eigin spýtur.
Forráðamenn þínir hafa ekki lengur aðgang að persónulegum gögnum um þig, sem þýðir að þegar þeir skrá sig inn í netbankann sinn sjá þeir ekki lengur yfirlit yfir bankareikningana þína. Þú berð nú ábyrgð á þínum fjármálum. Þegar þú ert orðinn fjárráða hefur þú einnig möguleika á því að sækja um kreditkort, yfirdrátt og önnur lán án aðkomu forráðamanna þinna.
Það er því mjög mikilvægt að þú hafir góða yfirsýn yfir fjármálin, skiljir hvað í skuldsetningu felst og sért ekki að eyða um efni fram. Ef þú lendir í því að skuldsetja þig um of og ræður ekki við að greiða af lánum þínum er það eingöngu á þína ábyrgð.
Það er því sniðugt að óska eftir viðtali við fjármálaráðgjafa til þess að fara yfir þessi tímamót og fá yfirsýn yfir fjárhagslega stöðu.
Fjármálalæsi, hvað er það?
Fjármálalæsi felst í því að skilja helstu hugtök í fjármálum. Gott fjármálalæsi eykur sjálfstraust þitt og hjálpar þér að ná árangri og öðlast fjárhagslegt sjálfstæði.
Eftirfarandi atriði geta hjálpað:
- Reyndu að eyða ekki öllum peningunum þínumog stefndu á að eiga smá afgang
- Settu þér sparnaðarmarkmið fyrir hvern mánuð/hverja útborgun
- Sparnaður getur verið langtímaverkefni. Sýndu þolinmæði!
- Talaðu um peninga við þína nánustu og fáðu ráðleggingar
Vonandi nýtast þessar ráðleggingar þér vel í nýjasta starfinu. Í Arion appinu geturðu kynnt þér fjölbreytt framboð launa- og sparnaðarreikninga og eins er auðvelt að bóka tíma hjá þjónusturáðgjafa á vefnum okkar . Við tökum alltaf vel á móti þér.