Arion banki varar við svikapóstum

Að undanförnu hefur orðið vart við tilraunir óprúttinna aðila til að komast yfir fjárhagsupplýsingar neytenda. Dæmi eru um að fólk hafi fengið póst sem lítur út fyrir að vera frá Netflix en er í raun frá aðilum sem vilja komast yfir greiðsluupplýsingar fólks.
Við hjá Arion banka teljum fulla ástæðu til að vara viðskiptavini okkar eindregið við tölvupóstum sem þessum enda um að ræða þekkta aðferð til að blekkja fólk. Af þessum sökum viljum við biðja viðskiptavini okkar að hafa eftirfarandi í huga:
- Ekki opna hlekki í tölvupóstum sem þú kannast ekki við. Með því að láta músina hvíla yfir hlekkjum (e. hover) getur þú kannað hvort vefslóðin vísar á þann stað sem þú býst við.
- Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp öryggisnúmer sem sent er í farsíma frá VISA eða Mastercard þegar boð um endurgreiðslu berast. Slík öryggisnúmer eru eingöngu notuð til að staðfesta kaup á netinu.
- Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp þriggja stafa öryggisnúmer sem er aftan á kortunum þegar um endurgreiðslur er að ræða.
- Aldrei gefa upp PIN númer greiðslukortsins þíns til annars aðila, hvort sem er í síma, tölvupósti eða á vefsíðu.
- Korthafar sem gefa upp allar öryggisupplýsingar í tengslum við kortið til rangra aðila geta átt á hættu að bera sjálfir hugsanlegt tjón.
- Gefðu aldrei upp lykilorð netbankans þíns í tölvupósti og ekki skrá það inn á öðrum vefsíðum en sjálfum netbankanum.
- Varastu pósta á lélegri íslensku. Erlend fyrirtæki senda venjulega allt á ensku.
Nánar má lesa um öryggi við notkun greiðslukorta hér.