06. mars 2020
Arion banki tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna fyrir framúrskarandi veflausnir

Árlega veita Samtök vefiðnaðarins, SVEF, verðlaun fyrir þá vefi og veflausnir sem þykja skara framúr. Það er gaman að segja frá því að í þetta sinn eru fimm framúrskarandi verkefni Arion banka tilnefnd í eftirfarandi flokkum:
-
Fyrirtækjavefur ársins (lítil fyrirtæki): frjalsi.is
-
Fyrirtækjavefur ársins (stór fyrirtæki): arionbanki.is
-
Stafræn lausn ársins: Tenging við aðra banka – þrír bankar í einu appi og tryggingar í Arion appinu
-
Tæknilausn ársins: Tryggingar í Arion appinu
-
App ársins: Arion appið
Íslensku vefverðlaunin verða afhent föstudaginn 13. mars næstkomandi.