EFÍA gerir rekstrarsamning við Arion Banka
Undanfarin 18 ár hefur Eftirlaunasjóður FÍA verið í samstarfi við Landsbanka Íslands um rekstur sjóðsins. Til þessarar samvinnu var stofnað þegar Landsbankinn rak verðbréfafyrirtækið Landsbréf. Samstarf sjóðsins og Landsbankans hefur gengið með ágætum þennan tíma.
Fyrir nokkrum mánuðum síðan óskaði Landsbankinn eftir endurskoðun á rekstrarsamningi við sjóðinn, sem kom reyndar ekki á óvart, þar sem gildandi samningur var sjóðnum mjög hagfeldur. Í framhaldi af þessari beiðni hóf stjórn sjóðsins vinnu við að kanna samstarfs- og/eða sameiningarmöguleika sjóðsins við aðra lífeyrissjóði og fjármálastofnanir.
Niðurstaða þessarar vinnu var sú að 3 aðilar, Landsbanki, Arion banki og Almenni lífeyrissjóðurinn, væru best fallnir til þess að reka og stýra sjóðnum. Allir þrír aðilar gerðu tilboð í rekstur og stýringu sjóðsins. Hlutlaust matsfyrirtæki KPMG var fengið til að greina tilboðin og rekstraraðilana, sem leiddi til þess að stjórnin einbeitti sér að frekari viðræðum við Landsbanka og Arion banka.
Fimmtudaginn 3. nóvember undirritaði stjórn EFÍA nýjan rekstrarsamning við Arion banka og mun því yfirfærsla sjóðsins til Arion hefjast á næstu dögum. Áætlað er að yfirfærslan taki 2-3 mánuði. Þangað til flutningi sjóðsins er lokið mun Landsbankinn sjá um rekstur EFÍA og um þjónustu við sjóðfélag eins og hefur verið.
Stjórn sjóðsins vill nota tækifærið og þakka starfsfólki Landsbankans ánægjulegt samstarf á liðnum árum.
Við munum koma frekari upplýsingum til sjóðfélaga eftir því sem málinu miðar áfram.
Stjórn EFÍA.