10. apríl 2012
Rafrænir launaseðlar
Frá og með síðustu mánaðamótum eru launaseðlar frá sjóðnum eingöngu sendir rafrænt í heimabanka sjóðfélaga. Kjósi sjóðfélagi að fá launaseðla senda í bréfpósti þarf hann að hafa samband við Lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444-8960 eða með því að senda tölvupóst á efia@arionbanki.is og óska eftir því að launaseðill verði sendur með þeim hætti.
Hafi breytt fyrirkomulag varðandi útsendingu launaseðla valdið sjóðfélögum óþægindum er beðist velvirðingar á því.