Kosning vegna breytinga á samþykktum
Á síðasta ársfundi sjóðsins sem haldinn var 24. maí 2012 lagði stjórn sjóðsins fram tillögu um breytingu á samþykktum sjóðsins sem felur í sér skerðingu á réttindum sjóðfélaga. Tillagan miðar að því að koma heildastöðu sjóðsins í jafnvægi á tveimur árum.
Samkvæmt samþykktum sjóðsins þurfa breytingar á samþykktum hans að hljóta skriflegt samþykki meirihluta greiddra atkvæða sjóðfélaga í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Því hefur sjóðfélögum nú verið sent bréf með kjörseðli og fylgigögnum vegna kosningarinnar.
Síðasti dagur til að skila inn kjörseðli er 9. júlí næstkomandi.
Séu einhverjar spurningar varðandi kosninguna má senda fyrirspurninr á efia@arionbanki.is