18. júlí 2012
Niðurstöður kosninga - breytingar samþykktar
Niðurstaða liggur fyrir í kosningum um breytingar á samþykktum sjóðsins sem nánar má lesa um hér.
Alls greiddu 218 sjóðfélagar atkvæði í kosningunum. 136 greiddu atkvæði með breytingum, 80 greiddu atkvæði á móti og 2 seðlar voru auðir.
Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins var því samþykkt með meirihluta greiddra atkvæða og verða nýjar samþykktir sendar fjármálaráðuneytinu til staðfestingar. Nýjar samþykktir munu taka gildi næstu mánaðamót eftir staðfestingu fjármálaráðuneytisins.