09. janúar 2013
Fræðslufundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn miðvikudaginn 16. janúar
Á fræðslufundinum verður m.a. fjallað um ávöxtun og eignasamsetningu sjóðsins á árinu 2012, breytingar á réttindum sjóðfélaga og boðið uppá umræður um málefni sjóðsins.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16. janúar kl. 20:00 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi .
Gert er ráð fyrir að fundurinn standi yfir í um klukkustund og verða léttar veitingar í boði.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.