Niðurstaða kosninga um samþykktarbreytingar
Lokið er atkvæðagreiðslu sjóðfélaga um breytingar á samþykktum sem lagðar voru fram á ársfundi sjóðsins 14. maí sl. Tillögurnar lutu að því að uppfæra samþykktir sjóðsins til samræmis við lög og einfalda texta, auk annarra breytinga sem stjórn sjóðsins telur vera til bóta.
Alls skiluðu 180 sjóðfélagar atkvæðaseðlum og var kjörsókn því 23%. Samþykkir samþykktarbreytingum í heild voru 162, 15 samþykktu að hluta en 3 voru á móti.
Meirihluti greiddra atkvæða sjóðfélaga hefur því samþykkt tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins og öðlast þær gildi að fenginni staðfestingu ráðherra.