Símtöl frá söluaðilum ekki á vegum EFÍA

Símtöl frá söluaðilum ekki á vegum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur borist til eyrna að söluaðilar lífeyrissparnaðar hafi sett sig í samband við sjóðfélaga með þeim skilaboðum að það sé gert að beiðni EFÍA vegna bágrar stöðu og mikillar óvissu um framtíð sjóðsins. Af því tilefni vill stjórn EFÍA taka skýrt fram að símtöl þessi eru ekki á vegum sjóðsins og enginn fótur er fyrir rógburði af þessu tagi. Er þess óskað að sjóðfélagar tilkynni stjórn ef slík símtöl hafa átt sér stað eða framhald verði á slíkum símtölum þar sem söluaðilar kynna að verið sé að hringja í umboði EFÍA og mun verða gripið til viðeigandi ráðstafana.

Eins og samþykktir EFÍA heimila geta sjóðfélagar valið að setja hluta lífeyrissparnaðar síns í séreignarsjóði, sem eru ótengdir EFÍA. Val um það er í höndum sjóðfélaga sjálfra en að mörgu er að hyggja í þessu sambandi. Til að koma til móts við sjóðfélaga hefur verið sett upp séreignarreiknivél þar sem hægt er að sjá mun á viðkomandi leiðum. Í byrjun nýs árs mun stjórn og rekstraraðili sjóðsins boða til fundar með sjóðfélögum þar sem leitast verður við að fara yfir kosti og galla hvorrar leiðar fyrir sig, auk þess sem farið verður yfir stöðu og rekstur sjóðsins á sambærilegan hátt og gert var við góðar undirtektir í janúar síðastliðnum.