Fræðslufundur EFÍA miðvikudaginn 22. janúar 2014

Fræðslufundur EFÍA miðvikudaginn 22. janúar 2014

Fræðslufundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn miðvikudaginn 22. janúar 2014 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi.

Á fundinum verður m.a. fjallað um ávöxtun og eignasamsetningu sjóðsins á árinu 2013, farið verður yfir kosti og galla þess að ráðstafa hluta lífeyrisiðgjalda í séreignarsparnað og boðið upp á umræður um málefni sjóðsins.

Fundurinn hefst kl. 20 og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.