Sjóðfélagar EFÍA í heimsókn í Arion banka

Sjóðfélagar EFÍA í heimsókn í Arion banka

Í gær var móttaka fyrir sjóðfélaga EFÍA í nýju útibúi Arion banka í Borgartúni 18, í tilefni af því að þjónusta við sjóðfélaga hefur nú verið flutt þangað frá útibúinu á Hlemmi. 

Sveinn Gíslason, svæðisstjóri Arion banka í Reykjavík og Ragnheiður Jóhannesdóttir, útibússtjóri, sýndu nýja útibúið og fóru yfir nýjungar í bankaþjónustu. Þá voru fjármálaráðgjafar á staðnum til skrafs og ráðagerða. Boðið var upp á léttar veitingar. 

Persónuleg ráðgjöf og þjónusta er efld í nýja útibúinu og er fleira starfsfólk en áður til að sinna sérhæfðri fjármálaþjónustu s.s. ráðgjöf á sviði sparnaðar, lífeyrismála og fjármögnunar íbúðarhúsnæðis. 

Sjóðfélagar eru hvattir til þess að nýta sér þjónustuna, koma í heimsókn í Borgartúnið, eða panta tíma hjá fjármálaráðgjafa. Þjónustusími sjóðfélaga EFÍA er 444 8960 eins og áður og netfangið er efia@arionbanki.is