Fræðslufundur EFÍA miðvikudaginn 28. janúar 2015

Fræðslufundur EFÍA miðvikudaginn 28. janúar 2015

Fræðslufundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn miðvikudaginn 28. janúar 2015 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi.

Á fundinum verður fjallað um ávöxtun og eignasamsetningu sjóðsins á árinu 2014. Einnig verða umræður um önnur málefni sjóðsins.

Fundurinn hefst kl. 20 og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.