Breytingar á sjóðfélagalánum

Breytingar á sjóðfélagalánum

Nú um áramótin taka gildi nýjar lánareglur EFÍA. Markmið breytinganna er að auka framboð lána á samkeppnishæfum kjörum til sjóðfélaga og mæta um leið breytingum á fjármálamarkaði. Sjóðfélögum hafa staðið til boða verðtryggð lán með breytilegum vöxtum en núna verður boðið upp á tvo lánamöguleika til viðbótar, verðtryggð lán með föstum vöxtum til 5 ára og óverðtryggð lán með föstum vöxtum í 3 ár. Samhliða þessum breytingum voru vextir endurskoðaðir og veðhlutfall hækkað.

Vextir núverandi lána með breytilegum vöxtum munu lækka í 3,30% nú um áramótin.

Lánamöguleikar og vaxtakjör

Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum:

  • Sama lánsform og hefur verið í boði. Vextir breytast á 3 mánaða fresti.
  • Vextir taka mið af 3 mánaða meðaltali ávöxtunar á RIKS21 að viðbættu álagi stjórnar nú 0,75%.
  • Vextir um áramót verða 3,30%

Verðtryggð lán með föstum vöxtum í 5 ár:

  • Vextir eru fastir í fimm ár, að þeim tíma liðnum getur sjóðfélagi fest sig aftur í fimm ár eða skipt yfir í önnur lánsform.
  • Vaxtakjör eru ákvörðuð af stjórn og geta þeir lægst farið í 3,75%.
  • Vextir um áramót verða 3,75%

Óverðtryggð lán með föstum vöxtum í 3 ár:

  • Vextir eru fastir í þrjú ár, að þeim tíma liðnum getur sjóðfélagi fest sig aftur í þrjú ár eða skipt yfir í verðtryggt lán með föstum eða breytilegum vöxtum.
  • Vaxtakjör eru ákvörðuð af stjórn sjóðsins.
  • Vextir um áramót verða 6,95%.

Veðsetning

Veðsetning getur að hámarki verið 65% af metnu markaðsvirði íbúðarhúsnæðis. Sjóðurinn býður upp á viðbótarlán upp að 75% veðhlutfalli. Viðbótarlán bera viðbótarvaxtaálag sem ákveðið er af stjórn sjóðsins, nú 0,75%. Fari lánsfjárhæð yfir 65% veðhlutfall er jafnframt gerð krafa um að lán sjóðsins sé á 1 veðrétti og viðbótarlán á 2. veðrétti. Veðsetning má þó aldrei vera hærri en 100% af brunabótamati.