Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA
Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn miðvikudaginn 11. maí kl. 14.00 í Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Dagskrá fundarins fer eftir samþykktum sjóðsins og 30. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða.
Allir sjóðfélagar eiga rétt á fundarsetu með umræðu- og tillögurétti.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur kynntur
- Tryggingafræðileg úttekt
- Fjárfestingarstefna
- Skipun stjórnar og laun stjórnarmanna
- Val endurskoðenda
- Tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins
- Önnur mál
Í samræmi við samþykktir sjóðsins verður efnt til atkvæðagreiðslu meðal sjóðfélaga um tillögur til breytinga á samþykktum í framhaldi af ársfundinum.
Tillögur til ályktunar um önnur mál, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Ársreikning sjóðsins 2015, tryggingafræðilega úttekt og tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum má nálgast hér fyrir neðan. Gögn vegna atkvæðagreiðslu um samþykktarbreytingar verða send út að ársfundi loknum.
Ársreikningur 2015
Tryggingafræðileg úttekt 2015
Tillögur til samþykktarbreytinga - kynntar á ársfundi 2016