Óbreyttir vextir á sjóðfélagalánum EFÍA
Í lánareglum EFÍA er tekið fram að vextir á lánum sem bera verðtryggða breytilega vexti skulu endurskoðaðir ársfjórðungslega. Vextir taka mið af meðalávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfsins RIKS21 sl. þriggja mánaða að viðbættu vaxtaálagi stjórnar.
Nú hefur meðalávöxtunarkrafa RISK21 sl. þrjá mánuði hækkað frá síðustu vaxtaákvörðun stjórnar og því ætti að hækka vexti. Í gær lækkaði Seðlabanki Íslands vexti sem hafði töluverð áhrif á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa. Vegna þess hefur verið ákveðið að hækka ekki vexti verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum og verða þeir því áfram 3,45%. Vextir óverðtryggðra lána með föstum vöxtum til þriggja ára og verðtryggðra lána með föstum vöxtum til fimm ára eru einnig óbreyttir.
Sjóðfélagalán EFÍA eru með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum, að vali sjóðfélaga. Þau eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.