Vel sóttur fræðslufundur

Vel sóttur fræðslufundur

Á fræðslufundi um viðbótarlífeyrissparnað og fasteignakaup fjallaði Snædís Ögn Flosadóttir, framkvæmdastjóri EFÍA um skattfrjálsa notkun viðbótarlífeyrissparnaðar til fjármögnunar fyrstu fasteignakaupa, valmöguleika sjóðfélaga EFÍA í framlagi til viðbótarlífeyrissparnaðar og sjóðfélagalán EFÍA.

Fundurinn var einstaklega vel sóttur af sjóðfélögum og fylltu sjóðfélagar á öllum aldri salinn í Hlíðarsmára. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá hve mikinn áhuga fundargestir höfðu á viðfangsefninu og sköpuðust líflegar og áhugaverðar umræður meðal viðstaddra í lok fundar.