Tilkynning frá stjórn
Vegna nýlegra kaupa vogunarsjóða á hlut í Arion banka vill stjórn EFÍA koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri við sjóðfélaga.
Rekstur og ímynd EFÍA skiptir stjórn sjóðsins miklu máli og mun stjórnin fylgjast vel með framvindu mála í Arion banka og grípa til aðgerða ef þurfa þykir.
Rekstur EFÍA hefur verið í höndum Arion banka frá upphafi árs 2012 og hefur rekstur sjóðsins gengið afskaplega vel eins og ávöxtun sjóðsins gefur til kynna. Starfsfólk eignarstýringar fagfjárfesta hjá Arion banka hefur séð um rekstur sjóðsins og ríkir mikið og gott traust á milli stjórnar og viðeigandi aðila.
Stjórn EFÍA