Um fjárfestingu EFÍA í United Silicon
Verksmiðja United Silicon hefur verið til umfjöllunar síðustu daga og einnig fjárfesting lífeyrissjóða í félaginu.
Árið 2014 samþykkti stjórn EFÍA, ásamt öðrum fjárfestum þ.á.m. lífeyrissjóðum, að taka þátt í fjármögnun verksmiðju United Silicon í Helguvík. Samtals nemur fjárfesting EFÍA í verkefninu 112,9 milljónum króna eða 0,34% af heildareignum sjóðsins. Arðsemi fjárfestingarinnar var metin góð að teknu tilliti til áhættu.
Skoðun á verkefninu hófst snemma á árinu 2014. Líkt og með aðrar sérhæfðar fjárfestingar þá er það stjórn sem tekur ákvörðun um þær að undangenginni ítarlegri greiningu sérfræðinga eignastýringu Arion Banka. Í lok árs 2014 var ákveðið að kaupa skuldabréf til fjármögnunar á verkefninu sem bar 10% vexti. Höfuðstól og vexti skildi greiða til baka í endurfjárfestanlegum evrum. Vaxtakjör bréfsins voru talin góð að teknu tilliti til áhættu og að fá tækifæri til að kaupa gjaldeyri fyrir íslenskar krónur þótti jákvætt á tímum gjaldeyrishafta.
Líkt og fram hefur komið í fréttum komu upp ítrekuð vandamál við gangsetningu verksmiðjunnar. Félagið fór í hlutafjáraukningar. Að lokinni ítarlegri greiningu sérfræðinga í eignastýringu Arion Banka samþykkti stjórn sjóðsins að taka þátt í þeim til að koma verksmiðjunni í starfshæft ástand. Í síðustu hlutafjáraukningunni gerðu EFÍA og aðrir lífeyrissjóðir sem fjárfestu í verkefninu kröfu um ákveðna skilmála til að tryggja hagsmuni sína sem best. Skilmálar sem gerð var krafa um voru m.a að nýtt hlutafé hefði forgang til arðs og fengi tvöfalt vægi atkvæða. Jafnframt settu sjóðirnir fram skýra kröfu um að félagið næði sátt við nærumhverfi sitt.
Ekki liggur ljóst fyrir hve mikið fjárhagstjón sjóðsins verður vegna umræddra fjárfestinga en mögulegt hámarkstap er 0,34% af heildareignum sjóðsins m.v. núverandi stöðu.
Stjórn EFÍA þykir sú staða sem upp er komin mjög miður en vonast eftir að félaginu takist að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu og fjárfesting sjóðsins skili ásættanlegri niðurstöðu. Sjóðurinn hefur verið þátttakandi í mörgum sérhæfðum fjárfestingararverkefnum sem skilað hafa sjóðfélögum hagstæðri ávöxtun. Þess er ávallt gætt að lágu hlutfalli af eignum sé fjárfest í hverju og einu verkefni til að draga úr áhættu sjóðsins.