Vaxtabreyting sjóðfélagalána EFÍA
Óverðtryggðir vextir sjóðfélagalána EFÍA lækka úr 5,90% í 5,75% frá og með 28. ágúst 2017.
Lækkunin nær aðeins til nýrra lána þar sem óverðtryggð lán sjóðsins eru með föstum vöxtum til þriggja ára í senn.
Verðtryggðir breytilegir vextir sjóðfélagalána lækka úr 3,45% í 3,35% og tekur lækkunin gildi 1. október en tilkynna þarf um lækkun breytilegra vaxta með eins mánaðar fyrirvara. Lækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.
Verðtryggðir vextir, fastir til fimm ára eru óbreyttir 3,75%.