Breyting á lánareglum EFÍA
Lánareglum EFÍA verður breytt þann 15. nóvember nk.
Breytingarnar fela í sér lækkun á hámarks veðhlutfalli en sjóðfélögum hefur staðið til boða að taka viðbótarlán upp að 75% veðhlutfalli gegn vaxtaálagi og hámarkslánveiting hefur verið 40 milljónir króna. Jafnframt er gerð breyting á forsendum verðmats eigna eftir því hvort um er að ræða lánveitingu tengda fasteignakaupum eða ekki, sem og breyting á hámarkslánsfjárhæð ef ekki er um fasteignakaup að ræða.
- Við fasteignakaup verður hámarksveðhlutfall 65% af kaupverði eignarinnar samkvæmt kaupsamningi og hámarkslánveiting 40 milljónir króna.
- Ef ekki er um fasteignakaup að ræða verður hámarksveðhlutfall 65% af fasteignamati eignarinnar og hámarkslánveiting 30 milljónir króna.
Markmið og vilji stjórnar er að halda áfram að bjóða upp á góð samkeppnishæf lán á sem bestum kjörum fyrir sjóðfélaga sem jafnframt teljast álitlegur fjárfestingarkostur fyrir sjóðinn, á því hefur ekki orðið breyting. Það er hins vegar ljóst að vöxtur lánveitinga hefur verið mikill og fari fram sem horfir er áframhaldandi vöxtur ekki sjálfbær. Grundvöllur þeirra breytinga sem nú er verið að gera er að hægja á vexti lánveitinga sjóðsins að einhverju marki til að hlutfall þess eignaflokks verði ekki það hátt að komið sé í veg fyrir nauðsynlega áhættudreifingu eigna.
Líkt og áður sagði mun breytingin taka gildi þann 15. nóvember og er frestun gildistöku hugsuð sem aðlögunartími. Sjóðfélagar sem höfðu hugsað sér að nýta sér lánamöguleika sjóðsins en falla ekki innan breytinganna geta þá sótt um á meðan eldir lánareglur eru í gildi. Vakin er sérstök athygli á því að sem fyrr verður áfram hægt að endurfjármagna lán sem sjóðfélagar eru þegar með hjá sjóðnum þrátt fyrir að þau falli utan nýrra reglna. Hámarksendurfjármögnunarupphæð er þá sú fjárhæð sem nemur eftirstöðvum eldra láns sem á að greiða upp.
Lánareglur EFÍA - taka gildi 15. nóvember 2017