Vaxtabreyting á sjóðfélagalánum EFÍA
Stjórn EFÍA hefur ákveðið að lækka vexti á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum. Við ákvörðun breytilegra vaxta verðtryggðra lána sjóðsins er horft til breytinga á meðalávöxtunarkröfu RIKS21 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi.
- Verðtryggðir breytilegir vextir sjóðfélagalána lækka úr 3,20% í 3,00% og tekur lækkunin gildi 1. apríl en tilkynna þarf um lækkun breytilegra vaxta með eins mánaðar fyrirvara. Lækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.
- Verðtryggðir vextir, fastir til fimm ára haldast óbreyttir, 3,75%.
- Óverðtryggðir vextir sjóðfélagalána EFÍA haldast óbreyttir, 5,65%
Sjóðfélagalán EFÍA eru með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum, að vali sjóðfélaga. Þau eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar. Vextir nýrra lána og lána með breytilegum vöxtum eru endurskoðaðir á þriggja mánaða fresti, þ.e. í febrúar, maí, ágúst og nóvember. Gildandi vextir eru birtir á heimasíðu sjóðsins.