Vaxtabreyting á sjóðfélagalánum EFÍA

Vaxtabreyting á sjóðfélagalánum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra lána sjóðsins með föstum vöxtum til þriggja ára. Vaxtabreytingin tekur gildi í dag 1.júní.

Óverðtryggðir vextir eru nú 5,80% en voru áður 5,65%.

Hækkunin á vöxtum óverðtryggðra lána nær aðeins til nýrra lána þar sem lán sjóðsins eru með föstum vöxtum til þriggja ára í senn.

Sjóðfélagalán EFÍA eru með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum, að vali sjóðfélaga. Þau eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar. Vextir nýrra lána og lána með breytilegum vöxtum eru endurskoðaðir á þriggja mánaða fresti, þ.e. í febrúar, maí, ágúst og nóvember. Gildandi vextir eru birtir á heimasíðu sjóðsins.