Niðurstöður kosninga febrúar 2019

Niðurstöður kosninga febrúar 2019

Kosningum um samþykktabreytingar EFÍA lauk í gær, fimmtudaginn 21. febrúar kl. 13:00 og liggja niðurstöður nú fyrir. 

Kosið var um tillögur til samþykktabreytinga þar sem lagðar voru til breytingar á fyrirkomulagi í tengslum við stjórn EFÍA. Var meðal annars lögð til sú breyting að fulltrúar FÍA í stjórn EFÍA verði kosnir af sjóðfélögum í beinni kosningu. Allar breytingatillögur sneru að stjórnarkjöri, tilhögun þess, skipun kjörnefndar og tilhögun ársfundar.

Meirihluti atkvæða féll með breytingunni eða 94,49%. Nýjar samþykktir taka gildi að undangenginni staðfestingu Fjármála og efnahagsráðuneytisins.