Ársfundur EFÍA 2019

Ársfundur EFÍA 2019

Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn þriðjudaginn 28. maí kl. 11:00 í Hlíðasmára 8 í Kópavogi.

Dagskrá fundarins fer eftir samþykktum sjóðsins og 30. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða. Allir sjóðfélagar eiga rétt á fundarsetu með umræðu- og tillögurétti.

Dagskrá og fundargögn verða birt þegar nær dregur en vakin er sérstök athygli á stjórnarkjöri sem fram fer nú í fyrsta sinn og sjóðfélagar hvattir til að fylgjast vel með næstu vikur og mæta á ársfund sjóðsins.

Tillögur til ályktunar um önnur mál, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.